Gréta Sóley

.

23.08.2008 19:20:43 / gretasol

Já, eins og Tóti segir: ekkert að gerast á þessari bloggsíðu!

Er komin heim og er bara að slaka á þangað til að skólinn byrjar :)
Komin með bókalista og nú er bara að fara að finna þessar bækur :P

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 17:25:52 / gretasol

3 dagar í Ísland :)

Þessa dagana einkennast dagarnir af því að pakka niður og kveðja :)
Alveg að koma heim :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 16:42:04 / gretasol

Afmælisdagurinn minn :D

Jæja!
Átti æðislegan afmælisdag í gær!

Byrjaði á því að fara í hádegismat með Jared, Jill og Aaron á Applebees! Fengum okkur að borða og ég fékk ís í eftirrétt. Svo komu þjónarnir og sungu afmælissöngin fyrir mig :haha:
Söng "Það var einu sinni api" fyrir Aaron og honum fannst það ekki leiðinlegt.

Kom svo heim og ég og Guðmundur fórum yfir til afa og ömmu til að óska afa til hamingju með 89 ára afmælið :)
Þegar við komum til baka þá tókum við okkur til og fórum á Dave and Buster's sem er veitingarstaður og á neðri hæðinni er fullt af leikjum þar sem þú vinnur miða og svo ferðu og færð dót fyrir miðana þína ;)
Það var æði, en áður en við fórum að spila þá borðuðum við. Fékk gjafakort, pening, nammi, myndaalbúm og svo fékk ég tösku fulla af skrappdóti frá Guðmundi og Serenu....

Þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar! :D
Sjáumst eftir 6 daga


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 04:06:59 / gretasol

Ammæli!!

Skrifa blogg um afmælið mitt á morgun þegar það er búið :haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 16:45:06 / gretasol

Til hamingju með daginn!!

Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún Anna Kristín,
Hún á afmæli í dag!

Hún er 27 ára í dag,
Hún er 27 ára í dag,
Hún er 27 ára hún Anna Kristín,
Hún er 27 ára í dag!

Hún hefur stækkað í nótt,
Hún hefur stækkað í nótt,
Hún hefur stækkað hún Anna Kristín,
Hún hefur stækkað í nótt!

Þetta er afmæliskveðja,
Þetta er afmæliskveðja,
Þetta er afmæliskveðja,
Frá okkur til þín!


Til hamingju með daginn Anna Kristín!!!
Hafðu það sem allara best á afmælisdaginn!!!
:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 20:35:24 / gretasol

Bloggleysi.. .

Bloggleysi? Já!
Hef ekki mikið verið að gera spennandi hérna síðustu vikur...
Guðmundur og Serena eru búinn að fá íbúð sem er hérna rétt hjá og þau(hún) gera ekki annað en að kvarta um hvað hún sé lítil og að það sé ekki nóg pláss fyrir öll húsgögnin eins og þau séu 7 manna fjölskylda eða eitthvað!
Íbúðin er, já lítil, en þau eru bara tvö og þurfa ekki stærri íbúð, húsgögnin geta verið í geymslu (eru með frítt pláss) þangað til þau flytja í stærra húsnæði...
Ég mun sofa á sófanum í síðustu 1 og hálfa til 2 vikurnar sem er ekkert hræðilegt...
Erum að mála og svona þannig að það verður flutt inn örugglega í vikunni eða snemma í næstu viku.
Er ekki búin að vera dugleg að liggja í sólbaði :$ þarf að fara að gera það ef ég ætla að fá einhverja smá brúnku áður en að ég kem heim eftir 2 og hálfa viku! Trúiði því?!

Blogga aftur, vonandi áður en að ég kem heim :d
Gréta Sóley




» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 22:32:59 / gretasol

Myndir af nýju klippingunni minni...

    


Svona er hún...
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2008 21:12:42 / gretasol

...

Eins og flestir vita sem lesa bloggið hennar mömmu þá er Jean fallin frá...
Mikið að gera þessa dagana, minningarathöfnin á morgun og svo þarf að ganga frá öllu húsinu...
Fór í klippingu í fyrradag...
Blogga aftur seinna...


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 22:21:22 / gretasol

...

Jæja, ekkert betra að fréta núna...
Við erum nokkuð viss um að hún eigi ekki mikið eftir...
Síðustu 3 daga hefur hún ekki getað farið úr rúminu og sefur rúmlega 20 tíma á sólarhring.
Þú getur stundum talað við hana og stundum ekki. Hún er með ofskynjarnir og það eina sem hún getur drukkið núna er vatn.

En ég er að fara til Flórída á morgun (fimmtudag) að hjálpa Serenu að pakka og svo ætlum við að fara að heimsækja ömmu hennar og afa áður en við keyrum samtals rúmlega 17 tíma til Pennsylvaniu...
Svo er 4.júlí á föstudaginn og við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt þá til að hugsa um eitthvað annað en allt sem er í gangi!

En ég blogga svo aftur þegar ég kem frá Flórída :D
Gréta Sóley


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 17:16:38 / gretasol

...

Ekki góðar fréttir héðan....
Jean er búinn að vera mjög slöpp og veik og er ekki búin að vera góð...
Getur lítið hreyft sig og þarf að leiðandi verða vöðvarnir aumir og getur þar af leiðandi lítið gert. Hún skelfur oft sem að hjúkkan segir að séu vöðvarnir að panikka vegna hreyfingarleysis. Hún getur ekki setið nema í svona mínútu og þá verður hún að leggjast niður. Það þarf 2 til að hjálpa henni upp úr rúminu og sófanum og hún ælir ennþá reglulega.
Þeir byrja ekki efnameðferðina á meðan hún er svona og þeir vita ekki hvenær (eða hvort?) þeir ætla að gera hana. Lítur ekki vel út!

Þetta er svona aðal sem er í gangi hérna...

Blogga aftur seinna...
Segið Ölmu Hlín að ég sakni hennar grilljón billjón mikið og mig vanti knúsin hennar þegar ég kem heim!!! <3 :cry:

Gréta Sóley


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 18:15:05 / gretasol

HAHAHA!!

Love, Hugs & Kiss MySpace Comments
Love, Hugs & Kiss MySpace Comments

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 15:16:34 / gretasol

:)

Hæhæ,
Jean kom heim af spítalanum í gær, er reyndar mikið þreytt og uppgefin. Skiljanlega, mikil erfiði að ferðast svona heim.
Læt ykkur vita hvernig hún hefur það...
Ég vaknaði aftur í morgun og fór að labba, en þetta "borða hollt" er ekki alveg að ganga hérna skal ég segja ykkur! :s
Ætlum að labba 4 daga í viku, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga :) Svo bara að hreyfa sig öðruvísi hina dagana :)

Guðmundur er í hádegismat núna með einhverjum köllum sem hann er að reyna að selja vefsíðu held ég og ég og Jean erum einar í kotinu í bili. Hún liggur bara og horfir á sjónvarpið inni í stofu...

En ég hef ekki mikið meira að segja akkurat núna, læt ykkur vita þegar eitthvað meira gerist :haha:
Kveðja Gréta Sóley


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 18:59:12 / gretasol

:)

Hæhæ...
Jean er ennþá á spítalanum og það veit enginn hvenær hún gæti komið heim. Núna eru þeir að fylgjast með einhverri tölu sem koma nýrunum við og á að vera 1 eða eitthvað en er 3-4 núna. Þeir skoða þetta á hverjum degi og þegar hún byrjar að lækka þá má hún koma heim. Þeir vilja ekki byrja á efnameðferðinni fyrr en hún kemur heim af spítalanum, þannig að hún fer ekki í efnameðferð á morgun eins og til var ætlað. Hún er orðin nokkuð leið á því að vera þarna, ég og Guðmundur vorum að tala um það að herbergin eru kuldaleg, rúmin óþægileg og þetta er allt saman hreinlega þreytandi og að við værum ekki viss að við gætum legið þarna, jafn vel bara einn dag, heil heilsu, hvað þá að fólkið sem er veikt!:$

En já, ég vaknaði klukkan 5 í morgun og var komin út úr húsi 5:20 og labbaði til Jill, sem tók mig hálftíma, var komin rétt fyrir 6 og svo löbbuðum við í klukkutíma saman :D Kom svo heim rétt eftir 8 , fór að sofa og svaf til rúmlega 2 :D
Var þreytt :D
Þetta ætlum við að reyna að gera á hverjum degi, því Jill langar aðeins að léttast fyrir sundlaugar partý sem að við erum að fara í og ég vil hjálpa henni eins og ég get, svo er það hreinlega miklu skemmtilegra að labba með einhverjum og tala en að labba einn.. ;)
Ætla líka að reyna að borða hollt (en samt alveg óhollt stundum) og svona.

En ég ætla að fara út og kaupa hádegismat handa mér og Guðmundi :)
Blogga aftur seinna þegar ég hef meira að segja frá :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 22:23:39 / gretasol

:)

Halló halló...
Smá fréttir hérna,
Jean er enn inná spítala, hún fór í einhverja smávægilega aðgerð í gær. Nýrun eru eitthvað að jafna sig eftir stóran snöggan skammt af sýklalyfjum þannig að þeir vilja ekki senda hana heim strax, kannski svona 2-3 dagar.
Ég fór í smá Bingó í gær og vann 6 dollara, ekki stórt en samt eitthvað...
Svoldið heitt, ekki mikið, en samt nógu heitt!
Ætlum að fara að spila mínígolf í kvöld, ég og Guðmundur :D
Ekki mikið meira.
Takk fyrir að lesa mamma (K)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 14:42:52 / gretasol

:)

Jean er uppá spítala, ég er ekki byrjuð að lesa bókina og Serena kemur ekki fyrr en í byrjun júlí.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4